|
Merki AP almannatengsla
Fyrir vef - smelltu hér Merki AP almannatengsla var upphaflega hannað um það leyti sem fyrirtækið hóf starfsemi sína árið 2002. Síðan þá hefur fyrirtækið vaxið og dafnað. Verkefni PORTS hönnunar fólst í því að endurhanna merki AP almannatengsla og gefa því meiri styrk í samræmi við reynsluna sem býr þar að baki. Leturtýpan var endurskoðuð með það í huga að styrkja merkið en áfram var haldið tryggð við rauða litinn. Örin er tákn fyrir samstarf AP almannatengsla við viðskiptavini sína og þá framtíðarsýn sem fyrirtækið hefur. |





