Edelman

AP almannatengsl eru samstarfsaðili alþjóðlega fyrirtækisins Edelmans, sem er eitt stærsta sjálfstæða almannatengslafyrirtæki í heimi með um 3.100 starfsmenn á 51 starfsstöð víða um heim.

Með samstarfinu við Edelman eru AP almannatengsl hluti af neti almannatengslaskrifstofa um allan heim og geta boðið viðskiptavinum fjölbreytta þjónustu á alþjóðlegum vettvangi. Víðtækur gagnagrunnur Edelman á sviði almannatengsla og markaðsrannsókna er aðgengilegur fyrirtækinu. Þannig fæst aðgangur að víðtækri þekkingu og hagnýtri reynslu frá öllum heimshornum.

Edelman býður þjónustu á öllum sviðum almannatengsla en hjá fyrirtækinu er m.a. unnið að ímynd fyrirtækja og vörumerkja, fjárfestatengslum, fjölmiðlatengslum, krísustjórnun, viðburðastjórnun, hönnun og útgáfu, samfélagslegri ábyrgð og innri samskiptum. Meðal viðskiptavina Edelman má nefna Microsoft, Unilever, Johnson&Johnson, Boeing, PepsiCo, Samsung, DuPont og UPS auk fjölda leiðandi fyrirtækja á fjármálamarkaði, í ferðaþjónustu, heilbrigðistækni, matvælaiðnaði, íþróttum, stjórnsýslu, markaðsmálum og skemmtanaiðnaði.

 

 
 
     
AP almannatengsl ehf. - Laugavegi 182 - 105 Reykjavík - sími +354 514 1430 - fax +354 514 1478 - appr@appr.is