NÝTT FRÁ EDELMAN

Fyrirtæki verða að standa undir væntingum

„Fyrirtæki verða að standa undir þeim væntingum sem til þeirra eru gerðar um að gagnast samfélaginu, ekki einungis hluthöfunum.“ Þetta segir Richard Edelman, forstjóri og stjórnarformaður alþjóðlega almannatengslafyrirtækisins Edelmans, samstarfsaðila AP almannatengsla, í tilefni af árlegri traustkönnun fyrirtækisins árið 2011. Hann segir einnig að gegnsæi í fyrirtækjarekstri verði að aukast.

Samkvæmt traustkönnun Edelmans jókst traust til viðskiptalífsins í heiminum lítillega frá fyrra ári. Staðan er þó mismunandi milli landa. Fyrir ári síðan hafði traustið til viðskiptalífsins einnig aukist nokkuð eftir nánast hrap árið áður.

Í hinni árlegu traustkönnun Edelmans eru könnuð viðhorf svonefndra áhrifavalda til fjögurra stofnana samfélagsins í 23 löndum. Þetta eru stjórnvöld, viðskiptalífið, fjölmiðlar og frjáls félagasamtök.

Tortryggni hefur aukist vegna erfiðleika fyrirtækja og stjórnvalda og kemur fram í litlu trausti að sögn Richards Edelman. Hann bætir þó við að svo virðist sem traust til viðskiptalífsins sé orðið nokkuð stöðugt, þegar litið er til heimsins í heild. Traustið sé þó mismunandi milli fyrirtækja, eftir starfsemi þeirra og hvernig þau standa að samskiptamálum sínum.

Í tilkynningu Edelmans segir að einungis um 15% fólks trúi jákvæðum fréttum af fyrirtækjum sem það hefur neikvæða afstöðu til. Um fjórðungur þátttakenda í könnun Edelmans í Bandaríkjunum og Bretlandi þurfa að heyra jákvæðar fréttir af fyrirtækjum, sem þeir hafa neikvæða afstöðu til, allt að sex sinnum eða oftar til að taka þær trúanlegar. Þetta er umtalsverð breyting á tveimur árum, sem sýnir aukna tortryggni í garð fyrirtækja.

Neal Flieger, forsvarsmaður fyrirtækisins StrategyOne, sem sá um framkvæmd trauskönnunar Edelmans, segir að fólk sé farið að haga sér eins og skynsamir neytendur þegar leitað er að ábyggilegum fréttum eða upplýsingum. Margir leiti fyrst á fréttaveitum leitarvéla á netinu til að sjá hvað er í boði varðandi það sem viðkomandi hefur áhuga á, áður en leitað er til hefðbundinna fjölmiðla.

Traust til fyrirtækja er almennt meira nú en í fyrra. Tæknifyrirtæki njóta mest trausts þriðja árið í röð. Þar á eftir koma bílafyrirtækin og fjarskiptafyrirtækin. Fjármálafyrirtækin njóta hins vegar minnst trausts. Þar munar mest um lítið traust sem bankar njóta.

Þýskaland nýtur mest trausts sem heimaland alþjóðlegra fyrirtækja. Kanada, Svíþjóð og Sviss koma næst í þessari röð.

Traustkönnun Edelmans fyrir árið 2011 náði til 5.075 einstaklinga á aldrinum 25-64 ára í 23 löndum og var framkvæmd í lok árs 2010.

Sjá nánar á vef Edelmans: http://www.edelman.com/trust/2011/

 

 

Traust á viðskiptalífinu eykst á ný

Traust á viðskiptalífinu í heiminum hefur aukist nokkuð frá síðasta ári. Þetta kemur fram í nýlegri könnun alþjóðlega almannatengslafyrirtækisins Edelman, samstarfsaðila AP almannatengsla, sem birt var fyrir nokkru. Aukið traust á viðskiptalífinu í Bandaríkjunum og í nokkrum löndum Evrópu er meginástæðan fyrir aukningunni frá fyrra ári. Hafa verður í huga að traustið hrapaði víða mikið á síðasta ári.

Í hinni árlegu traustskönnun Edelmans eru könnuð viðhorf svonefndra upplýstra einstaklinga til fjögurra stofnana samfélagsins í ýmsum löndum. Þetta eru stjórnvöld, viðskiptalífið, fjölmiðlar og frjáls félagasamtök.

Haft er eftir Richard Edelman, forstjóra og stjórnarformanni Edelmans, í tilkynningu frá fyrirtækinu að þótt traustið á viðskiptalífinu hafi aukist í ár sé nokkuð í land. „Hið aukna traust er viðkvæmt,“ segir hann. „Ýmsir hafa áhyggjur af því að þær skammtímaaðgerðir sem gripið hefur verið til hafi einungis verið ákveðnar út frá kreppunni og að stjórnvöld muni áfram þurfa að hafa vakandi auga með stöðunni.“ Þá segir Edelman að fyrirtækin verði að sýna að þeir sem efist um að þau geti bæði skilað hagnaði og gegnt hlutverki sínu sem skyldi hafi ekki ástæðu til að hugsa á þeim nótum.

Í fyrsta skipti í traustskönnun Edelmans kemur fram að traust og gegnsæi skiptir nú jafn miklu máli að mati þátttakenda í könnuninni og orðstír og afurðir fyrirtækjanna. Reyndar eru þessir þætti jafnvel hærra metnir í Bandaríkjunum og víða í Evrópulöndum. Þá er mun minna lagt upp úr hagnaði fyrirtækja nú en áður, sem er mikil breyting sérstaklega í samanburði við árið 2006, þegar áhersla á hagnað fór hæst.

Traust til fyrirtækja á Ítalíu jókst mest í könnun Edelmans á þessu ári, eða um 26 prósentustig. Næst komu Bandaríkin með 18 prósentustiga aukningu, úr 36% í 54%. Traustið er þó meira til fyrirtækja í Kína, á Indlandi og í Brasilíu, þar sem það er yfir 60%, en það féll ekki jafn mikið í þessum löndum og víðast hvar annars staðar á síðasta ári.

Könnun Edelmans fyrir árið 2010 er sú tíunda í röðinni hjá fyrirtækinu. Hún fór fram á tímabilinu frá 29. september til 6. desember 2009 og náði til 4.875 einstaklinga á aldrinum 25-64 ára í 22 löndum.  


Edelman valið „Ráðgjafafyrirtæki áratugarins“

Holmes Report, frétta- og upplýsingavefur um almannatengsl, hefur valið Edelman „Ráðgjafafyrirtæki áratugarins“. Í rökstuðningi  vegna valsins segir að á nýliðnum áratug hafi flest af stærstu almannatengslafyrirtækjum heims verið í eigu stórra samsteypa sem séu háðar auglýsendum en Edelman hafi sýnt að styrkur þess hafi verið að það sé sjálfstætt og óháð.

Í upphafi áratugarins var Edelman sjötta stærsta almannatengslafyrirtæki heims, með 186 milljóna dollara árstekjur. Í lok áratugarins er það komið í hóp þeirra þriggja stærstu, með tekjuaukningu upp á meira en 150% á 10 ára tímabili.

Nánar á Holmes Report.

 


Traust á viðskiptalífinu eykst aftur

Traust á viðskiptalífinu hefur aukist á nýjan leik síðustu mánuði eftir mikið hrun í kjölfar efnahagskreppunnar samkvæmt nýrri traustkönnun Edelmans, sem er alþjóðlegur samstarfsaðili AP almannatengsla. Edelman, sem framkvæmt hefur alþjóðlegar traustkannanir árlega sl. tíu ár, framkvæmdi sérstaka aukakönnun í sumar vegna sérstakra aðstæðna í efnahagslífinu. Könnunin 2009, sem birt var í janúar, hafði sýnt verulegt hrun í trausti til viðskiptalífsins í kjölfar efnahagsþrenginga, og því vildu forsvarsmenn Edelmans gera sérstaka aukakönnun nú á miðju ári til að meta stöðuna.

Niðurstaðan varð sú að traust til viðskiptalífsins hafði aukist talsvert frá síðustu könnun. Næstum helmingur svarenda (48%) í Bandaríkjunum sagðist treysta viðskiptalífinu til að gera það sem er rétt, sem er hækkun úr 36% í janúar. Í Frakklandi hækkaði sambærilegt hlutfall úr 30% í 41%. Traust til stjórnvalda virðist einnig fara vaxandi á nýjan leik, (úr 30% í 42% í Bandaríkjunum og úr 42% í 55% á Indlandi, svo dæmi séu tekin). Sérstaklega virðist sem traust hafi aukist í hópi yngstu svarenda (25 – 34 ára) og eftir því var tekið að traust jókst frá janúar á fyrirtækjum í öllum flokkum atvinnugreina sem spurt var um.

Þar með er þó ekki sagt að allt leiki í lyndi á nýjan leik í þessum efnum. Til að mynda segja einungis 30% svarenda í Bandaríkjunum að orðspor alþjóðlegra stórfyrirtækja sé gott eða mjög gott en rúmlega helmingur – 52% – segir það einungis vera sæmilegt eða slæmt.

Nánar má lesa um þessa nýjustu traustkönnun Edelmans hér.


Gott málefni

 

Hvað sem fjármálakreppu líður eru neytendur líklegri til að velja vöru og mæla með henni þegar þeir vita að um leið eru þeir að styrkja gott málefni. Í nýrri alþjóðlegri könnun almannatengslafyrirtækisins Edelmans meðal 6.000 neytenda í tíu löndum sögðust 68% halda tryggð við vörumerki í efnahagslægð ef það styður góð málefni. Þá segist 71% ýmist hafa varið sama eða meiri tíma og peningum og áður til góðra málefna í efnahagslægðinni sem nú ríkir.

 
 
     
AP almannatengsl ehf. - Laugavegi 182 - 105 Reykjavík - sími +354 514 1430 - fax +354 514 1478 - appr@appr.is