|
Føroya Banki eignast meirihluta í Verði |

 | Føroya Banki hefur eignast meirihluta í Verði tryggingu hf. AP almannatengsl aðstoðuðu við kynningu á kaupunum. Með fjárfestingu Føroya Banka í Verði upp á samtals 1.150 milljónir króna kemur öflugt erlent fjármálafyrirtæki inn á íslenskan markað. Staða Varðar styrkist til muna, eiginfjárstaða félagsins eftir hlutafjáraukningu verður um 1.300 milljónir króna og uppfyllir félagið þar með þær gjaldþolskröfur sem til þess eru gerðar.
|
|