Edelman almannatengslastofa ársins 2011
Edelman var nýlega  valin almannatengslastofa ársins í Bandaríkjunum í flokki stærri fyrirtækja í árlegu vali tímaritsins PRWeek, eins og árin 2008 og 2009.

Í frétt í PRWeek segir að velta Edelman í Bandaríkjunum hafi aukist um 16% síðastliðið rekstrarár og í fyrsta skipti farið yfir 300 milljónir Bandaríkjadala. Aukningin hafi náð til allra útibúa fyrirtækisins í Bandaríkjunum. Á heimsvísu hafi veltan aukist um 15% milli ára, en hjá Edelman starfa um 3.600 starfsmenn í 53 borgum í 27 löndum í 5 heimsálfum.

Fram kemur í frétt PRWeek að Edelman hafi ekki misst neinn af 50 stærstu viðskiptavinum sínum á rekstrarárinu. Hins vegar hafi um 200 nýir viðskiptavinir bæst við. Þar á meðal séu Bank of America, Best Buy og Harley Davidson.
  Til baka
 
     
AP almannatengsl ehf. - Laugavegi 182 - 105 Reykjavík - sími +354 514 1430 - fax +354 514 1478 - appr@appr.is