| Edelman almannatengslastofa ársins í flokki stærri fyrirtækja |
| 10-10-2007 | |
|
Tímaritið PRWeek hefur valið Edelman almannatengslastofu ársins 2006 í flokki fyrirtækja sem velta yfir 69 milljónum Bandaríkadala á ári. Dómnefnd velur út frá fjárhagslegum vexti fyrirtækisins, fjölgun viðskiptavina og hversu lengi þeir eru í viðskiptum, ásamt nýjungum og hugmyndaauðgi við almannatengslaherferðir. Í umsögn tímaritsins segir meðal annars: „Árið 2005 ákvað Edelman að sækja enn frekar fram í heimi samskipta. Framkvæmdastjóri fyrirtækisins, Richard Edelman, byrjaði að blogga af miklum móð, farið var út í samstarf við Technorati sem sérhæfir sig í rannsóknum á bloggi og alnetshluti herferðar Dove, „Campaign for Real Beauty“, átti stóran þátt í þeirri miklu athygli sem sú herferð fékk. Þá fékk fyrirtækið stór fyrirtæki á borð við Burger King í viðskipti ásamt því að sýna mikla hugmyndaauðgi við verkefni á borð við útgáfu Halo 2 tölvuleiksins.“ |
Til baka





