| Edelman eflir starfsemi sína á Norðurlöndum |
| 05-06-2007 | |
|
Edelman, eitt stærsta sjálfstæða almannatengslafyrirtæki í heimi, hefur styrkt starfsemi sína á Norðurlöndunum með samvinnu við norska almannatengslafyrirtækið Dinamo PR. Edelman Stockholm fer fyrir starfseminni á Norðurlöndum og í Eystrasaltslöndunum en er í samstarfi við almannatengslafyrirtæki í öllum hinum löndunum. Samstarfsaðili Edelman á Íslandi er AP almannatengsl en Edelman rekur sjálft aðeins eina skrifstofu á Norðurlöndunum, Edelman Stockholm í Svíþjóð. Aðrir samstarfsaðilar Edelman á Norðurlöndunum eru fyrrnefnt Dinamo PR í Noregi, Plus PR í Danmörku og Evia í Finnlandi en í Eystrasaltslöndunum eru það Corpore í Eistlandi, Kommunikãciju A?ent?ra í Lettlandi og PR Service í Litháen. Hið norska Dinamo PR hóf starfsemi árið 1998 og er hluti af fjölmiðlafyrirtækinu Dinamo, þar sem eru m.a. innanborðs auglýsingastofa og hugbúnaðarfyrirtæki sérhæft í gerð vefsvæða og veflausna. Dinamo PR er því vel í stakk búið að fást við margvísleg verkefni fyrir viðskiptavini sína stóra og smáa. |
Til baka





