Edelman sópar að sér verðlaunum
30-08-2007

Edelman í Evrópu vann fern gullverðlaun af fimmtán mögulegum á evrópsku SABRE 2007-verðlaunahátíðinni. SABRE stendur fyrir Superior Achievement in Branding and Reputation. Dómnefnd bárust á fimmtánda hundrað tillögur en aðeins 250 komust í lokaúrslit. SABRE-verðlaunin eru veitt árlega af The Holmes Report, sem er fagtímarit um almannatengsl.

Skrifstofa Edelman í Hamborg fékk fyrstu verðlaun í flokknum Markaðssetning málefna (Cause Related Marketing) fyrir herferðina „Mehr Kinder Besser Betreut“ sem var unnin fyrir Unilever.

Stokkhólmsskrifstofan fékk verðlaun í flokknum Samhæfð markaðssamskipti (Integrated Marketing) fyrir verkefnið „Battery Recycling“ sem unnið var fyrir Sænsku umhverfisstofnunina.

Þriðju verðlaunin, í flokknum Nýir miðlar (New and Digital Media), féllu í skaut Edelman í Mílanó, „Puma Fragrances - Come Closer“, sem unnið var fyrir Procter & Gamble.

Loks var það Edelman í Frankfurt sem hreppti verðlaun í flokknum DAS (Deutschland, Austria, Switzerland) fyrir verkefnið „Germany’s Foot Idol“, sem unnið var fyrir Novartis.

Til baka
 
 
     
AP almannatengsl ehf. - Laugavegi 182 - 105 Reykjavík - sími +354 514 1430 - fax +354 514 1478 - appr@appr.is