| ÍSMÓT 2007 í Höllinni 1. og 2. september |
| 21-06-2007 | |||
|
ÍSMÓT 2007, Íslandsmeistaramót hársnyrta, snyrtifræðinga, gullsmiða, klæðskera og ljósmyndara innan Samtaka iðnaðarins, fer fram í íþrótta- og sýningarhöllinni í Laugardal helgina 1. og 2. september nk. Samhliða verður haldin glæsileg sýning þar sem fyrirtækjum, félögum og stofnunum er boðið að kynna vörur sínar og þjónustu. AP sýningar sjá um framkvæmd og skipulagningu sýningarhluta ÍSMÓTS 2007 í samvinnu við mótshaldara. Mótshaldarar eru Samtök iðnaðarins, Meistarafélag í hárgreiðslu, Félag íslenskra snyrtifræðinga, Klæðskera- og kjólameistarafélagið, Félag íslenskra gullsmiða og Ljósmyndarafélag Íslands. AP almannatengsl sjá um kynningarhluta ÍSMÓTS 2007.
|
|||
Til baka





