Nýr starfsmaður ráðinn til AP almannatengsla
17-10-2007

Jóna Valborg Árnadóttir hefur hafið störf sem ráðgjafi og verkefnastjóri í almannatengslum. Jóna er með M.Paed.-gráðu í íslensku frá Háskóla Íslands og vorið 2007 lauk hún diplomanámi í verkefnastjórnun og leiðtogaþjálfun við Endurmenntun Háskóla Íslands.

Jóna starfaði á auglýsingastofunni Yddu sem textasmiður og prófarkalesari árið 1999. Hún var þjónustu- og markaðsstjóri hjá Yddu, síðar Nonna og Manna eftir að stofurnar tvær sameinuðust, 2000 til 2003. Með námi var Jóna m.a. framkvæmdastjóri Draumasmiðjunnar, sem er sjálfstætt starfandi atvinnuleikhús. Hún kenndi íslensku, lífsleikni og leiklist 2004 til 2007 við Flensborgarskólann í Hafnarfirði. Jóna hefur m.a. setið í ritstjórn tímaritsins Börn og menning og tekið að sér ritstjórn stefnumótunar fyrir Hafnarfjarðarbæ. Jóna Valborg er boðin velkomin til starfa!


Til baka
 
 
     
AP almannatengsl ehf. - Laugavegi 182 - 105 Reykjavík - sími +354 514 1430 - fax +354 514 1478 - appr@appr.is