Tæp 75% sýningarsvæðis á Verk og vit seld
16-11-2007

Sala sýningarsvæðis á Verk og vit 2008 gengur mjög vel og nú þegar er tæplega 75% sýningarsvæðisins seld þrátt fyrir að fimm mánuðir séu enn í sýninguna, sem fer fram 17.-20. apríl 2008 í Íþrótta- og sýningarhöllinni í Laugardal.

Um 50 fyrirtæki eru skráð til leiks og koma þau úr hinum ýmsu geirum atvinnulífsins og má þar nefna byggingarverktaka, steypustöðvar, byggingarvöruverslanir, verkfræðistofur, öryggisfyrirtæki, fjármálafyrirtæki, iðnskóla, olíufyrirtæki, plastframleiðendur o.fl.


Til baka
 
 
     
AP almannatengsl ehf. - Laugavegi 182 - 105 Reykjavík - sími +354 514 1430 - fax +354 514 1478 - appr@appr.is