Traustskönnun Edelman í fyrsta sinn á Íslandi
04-04-2007
 

Alþjóðleg könnun almannatengslafyrirtækisins Edelman á trausti og trúverðugleika verður kynnt í fyrsta skipti hér á landi á málþingi sem fram fer í Salnum í Kópavogi 3. maí. Framkvæmdastjóri Edelman í Evrópu, David Brain, mun kynna niðurstöður nýjustu könnunarinnar og þróun síðustu ára.

Traustskönnunin, Edelman Trust Barometer, er framkvæmd árlega í 18 löndum um allan heim og mælir viðhorf skilgreindra áhrifavalda til trausts og trúverðugleika fyrirtækja, stjórnvalda, félagasamtaka og fjölmiðla. Jafnframt eru traust og trúverðugleiki ákveðinna boðleiða mæld. Niðurstöðurnar eru jafnan kynntar á heimsviðskiptaráðstefnunni í Davos og hafa vakið mikla athygli helstu viðskiptafjölmiðla heims.

 

Þegar niðurstöður könnunarinnar 2007 voru kynntar fyrir skömmu kom meðal annars í ljós að í öllum heimsálfum nýtur viðskiptalífið meira trausts en stjórnvöld eða fjölmiðlar. Jafnframt virðist fólk almennt treysta jafningjum sínum og starfsmönnum fyrirtækja betur en stjórnendum eða talsmönnum. 

 Trust Barometer Logo  
Capacent á Íslandi hefur nú í fyrsta sinn gert sambærilega könnun hér á landi og mun kynna niðurstöður hennar á málþinginu. Verður athyglisvert að sjá hvort þær verði í líkingu við það sem fram hefur komið í könnunum Edelman. Niðurstöðurnar munu án efa koma að góðum notum hér á landi því mikilvægi traustskannana Edelman hefur ekki síst falist í því að þær gefa góðar vísbendingar um hvaða boðleiðir séu bestar til að auka traust og trúverðugleika skilaboða.

Á málþinginu 3. maí munu Halla Tómasdóttir, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs Íslands, Áslaug Pálsdóttir, framkvæmdastjóri AP almannatengsla, David Brain, framkvæmdastjóri Edelman í Evrópu, og Guðbjörg Andrea Jónsdóttir, rannsóknastjóri Capacent, flytja erindi. Fundarstjóri verður Sigmundur Ernir Rúnarsson, fréttastjóri Fréttastofu Stöðvar 2.

Jafnframt verða pallborðsumræður þar sem rætt verður um traust og trúverðugleika fyrirtækja, stjórnvalda, félagasamtaka og fjölmiðla. Þátttakendur í pallborðsumræðum verða Agnes Bragadóttir, blaðamaður á Morgunblaðinu, Edda Rós Karlsdóttir, forstöðumaður greiningardeildar Landsbankans, Guðlaugur Þór Þórðarson, alþingismaður, Jón Sigurðsson, forstjóri Össurar, Katrín Jakobsdóttir, varaformaður Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs, Þórður Friðjónsson, forstjóri OMX Nordic Exchange á Íslandi, og Þórir Guðmundsson, ritstjóri Vísis.

  Fyrirlesarar 

 Pallborð 3. maí

 

AP almannatengsl, samstarfsaðili Edelman á Íslandi, standa að málþinginu í samvinnu við Viðskiptaráð Íslands og Capacent. Málþingið er öllum opið en þátttökugjald er 14.900 krónur. Tilkynna þarf þátttöku á netfangið This e-mail address is being protected from spambots, you need JavaScript enabled to view it eða í síma 511 1230 og lýkur skráningu á hádegi miðvikudaginn 2. maí.

Nánari upplýsingar um dagskrá má finna hér.



 

Til baka
 
 
     
AP almannatengsl ehf. - Laugavegi 182 - 105 Reykjavík - sími +354 514 1430 - fax +354 514 1478 - appr@appr.is