| 05-02-2008 | |
|
Iðnmennt stendur fyrir Íslandsmóti iðngreina föstudaginn 18. og laugardaginn 19. apríl nk. í anddyri gömlu Laugardalshallarinnar. Líkt og undanfarin ár sér Iðnmennt um almennan undirbúning og skipulagningu mótsins en hefur nú gert samstarfssamning við AP almannatengsl sem sjá um kynningarmál og framkvæmd viðburðarins. Fagfélög iðngreina koma einnig að skipulagi mótsins. Markmið Íslandsmóts iðngreina er að auka sýnileika iðn- og starfsmenntunar, kynna þær almenningi – ekki síst ungu fólki – og vekja athygli á þeim tækifærum sem felast í námi og starfi í iðngreinum. Fyrirkomulag mótsins í ár er breytt frá því sem verið hefur að því leyti að nú ber það yfirskriftina Íslandsmót iðngreina í stað Íslandsmóts iðnnema. Mótið í ár er einnig undanfari og forkeppni einstakra keppnisgreina fyrir þátttöku í Euro Skills og World Skills sem er alþjóðleg keppni iðngreina. Íslandsmótið er ætlað iðnnemum og nýútskrifuðum iðnaðarmönnum, 22 ára og yngri. Keppt verður í eftirtöldum greinum: Dúklagningum, hársnyrtingu, málaraiðn, stálsmíði, múrverki, pípulögn, rafvirkjun, bílgreinum, snyrtifræði, trésmíði, prentiðn, grafískri miðlun og ljósmyndun. Auk þess verða kynntar ýmsar greinar, m.a. matvælaiðn og garðyrkja. „Það hefur sýnt sig að mót sem þetta er einhver besta kynning á iðnmenntun sem völ er á. Það er því von okkar að samstarfið við AP almannatengsl og tengslin við Verk og vit fjölgi enn frekar þeim sem leggja stund á iðnnám í framtíðinni,“ segir Erling Erlingsson, framkvæmdastjóri Iðnmenntar. |
Til baka





