02-05-2008

Áhrifavaldar á Íslandi bera meira traust til fjölmiðla en til stjórnvalda og viðskiptalífsins. Í nýrri könnun Capacent Gallup mældist traust til fjölmiðla 69%, til stjórnvalda 67% og til viðskiptalífsins 60%. Í sambærilegri könnun Capacent Gallup í fyrra reyndust flestir treysta ríkisstjórninni/stjórnvöldum betur en viðskiptalífinu og fjölmiðlum.

Þessar niðurstöður verða kynntar á morgunverðarfundi sem haldinn verður á vegum AP almannatengsla, Viðskiptaráðs og Capacent Gallup á Hilton Reykjavík Nordica fimmtudaginn 8. maí. Á fundinum mun Jere Sullivan, aðstoðarforstjóri almannatengslafyrirtækisins Edelman í Evrópu, einnig kynna niðurstöður úr níundu árlegu könnun Edelman meðal skilgreindra áhrifavalda í 18 löndum og fjalla um hvernig fyrirtæki, þjóðir og stofnanir geti nýtt niðurstöðurnar við að byggja upp traust sitt og trúverðugleika. Í könnunum Edelman er mælt traust til fyrirtækja, stjórnvalda, fjölmiðla og félagasamtaka auk þess sem traust og trúverðugleiki boðleiða eru mæld.

Ísland sker sig á vissan hátt úr varðandi traust til fjölmiðla þó svo að könnun Edelman endurspegli meira traust til fjölmiðla en áður. Í sambærilegri könnun Edelman, sem kynnt var á heimsviðskiptaráðstefnunni í Davos í Sviss fyrr á árinu, kom í ljós að í 14 af 18 löndum sem könnunin náði til nýtur viðskiptalífið meira trausts en stjórnvöld. Í sömu könnun Edelman árið á undan reyndust áhrifavaldar bera mest traust til viðskiptalífsins en á eftir komu fjölmiðlar og stjórnvöld. Könnun Edelman hefur jafnan vakið athygli meðal helstu viðskiptafjölmiðla heims enda þykir hún góður leiðarvísir fyrir stjórnendur.

Í könnun Capacent Gallup kemur einnig fram að 61% íslenskra áhrifavalda telja að umfjöllun um íslenskt efnahagslíf í erlendum fjölmiðlum undanfarin misseri hafi skaðað ímynd Íslands. Þá telja aðspurðir einnig að minnst traust sé borið til íslenskra fyrirtækja í Danmörku og Bandaríkjunum en að þau njóti mests trausts í Frakklandi og Þýskalandi.

Á morgunverðarfundinum flytja einnig erindi þau Finnur Oddsson, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs Íslands, Áslaug Pálsdóttir, framkvæmdastjóri AP almannatengsla, og Guðbjörg Andrea Jónsdóttir, rannsóknastjóri Capacent Gallup. Í lok fundarins verða pallborðsumræður.

Fundurinn er öllum opinn en þátttökugjald er 8.900 krónur. Tilkynna þarf þátttöku á netfangið This e-mail address is being protected from spambots, you need JavaScript enabled to view it eða í síma 511 1230.

Dagskrá og nánari upplýsingar má finna með því að smella hér.


Til baka
 
 
     
AP almannatengsl ehf. - Laugavegi 182 - 105 Reykjavík - sími +354 514 1430 - fax +354 514 1478 - appr@appr.is