Neytendur velja vörur sem tengjast góðu málefni
13-08-2008

Neytendur eru líklegri til að velja vöru og mæla með henni þegar þeir vita að um leið eru þeir að styrkja gott málefni. Í nýlegri könnun almannatengslafyrirtækisins Edelman meðal 5.500 neytenda í níu löndum sögðust 70% reiðubúin að borga meira fyrir vörumerki sem fæli í sér stuðning við gott málefni.

Þessar niðurstöður eru í samræmi við áherslur Edelman á „góðan tilgang“ eða „good purpose“, hugtak sem orðið er æ mikilvægara í markaðssetningu vöru og þjónustu. Í því felst að neytendur og framleiðendur vörumerkja taka höndum saman um að láta gott af sér leiða – gera gagnkvæma samfélagslega ábyrgð að veruleika. Málefnin geta verið af ýmsum toga, t.d. fjölmenning; menntun, listir og menning; umhverfismál; mannréttindi; heilsufar; fátækt og hungur; og sjálfsmat tiltekinna samfélagshópa.

Í könnuninni kemur fram að ef valið stendur á milli tveggja jafngóðra vörumerkja á sama verði segir 41% að stuðningur við gott málefni ráði ákvörðun sinni um kaup en einungis 32% nefna hönnun og nýsköpun og 26% vörumerkjatryggð. Þá sögðust 55% reiðubúin að mæla með vöru ef sala hennar þýddi stuðning við gott málefni.

Niðurstöður könnunarinnar þurfa ekki að koma á óvart en Edelman hefur fjallað um gagngera breytingu sem orðið hefur á hegðun og viðhorfum neytenda síðustu misseri. Nútímaneytendur eru ekki aðeins óvirkir áhorfendur og þiggjendur heldur þátttakendur og samstarfsaðilar sem nýta sér nýjustu tækni á sviði samskipta til að koma skoðunum sínum á famfæri. Þeir hafa þörf fyrir að sníða vörur og þjónustu að sínum þörfum (my play list, my news o.fl.), vilja deila skoðunum og upplýsingum með öðrum (blogg, MySpace, Facebook), vilja bæta sjálfa sig, heimili sitt og umhverfi, taka virka þátt í þróun vörumerkja og samskipta við markaðinn og bera umhyggju fyrir þróun samfélagsins nær og fjær. Á sama hátt vilja þeir hafa áhrif með því að velja eina vöru umfram aðra.

Sjá nánar


Til baka
 
 
     
AP almannatengsl ehf. - Laugavegi 182 - 105 Reykjavík - sími +354 514 1430 - fax +354 514 1478 - appr@appr.is