PORT hönnun - nýtt fyrirtæki á sviði grafískrar hönnunar
26-09-2008
Port Hönnun 

PORT hönnun er nýtt fyrirtæki á sviði grafískrar hönnunar. Markmið þess er að veita viðskiptavinum faglega þjónustu við gerð markaðsefnis og hvers kyns kynningarefnis auk ímyndaruppbyggingar.

Hönnunar- og framkvæmdastjóri fyrirtækisins er Edda Valborg Sigurðardóttir, teiknari FÍT, en hún hefur áratuga reynslu af grafískri hönnun og markaðsstörfum fyrir innlend og erlend fyrirtæki.

PORT hönnun vinnur með viðskiptavinum að sköpun merkja og heildarútlits (Corporate ID, Branding), gerð auglýsinga og skipulagningu auglýsingaherferða, almennum markaðs- og kynningarmálum ásamt því að aðstoða við markaðsrannsóknir í samstarfi við fagaðila. Fyrirtækið hannar prentgripi á borð við ársskýrslur, bækur og tímarit, umbúðir og auglýsingar og tekur einnig að sér að hanna stafrænt efni af ýmsu tagi eins og vefsíður, vefborða og glærukynningar.

PORT hönnun hefur þegar unnið að ýmsum verkefnum hér á landi og erlendis. Má nefna verkefni fyrir Vatnajökulsþjóðgarð, Mannvit verkfræðistofu, Jazzhátíð 2008 og Landbúnaðarsýninguna á Hellu. Meðal erlendra fyrirtækja hefur PORT hönnun unnið verkefni fyrir Boston Museum of Science, Gibson Hasbrouck Associates og Core Inc.

Edda Valborg Sigurðardóttir starfaði síðast sem framkvæmdarstjóri hönnunarsviðs hjá hönnunar- og útgáfufyrirtækinu Mazer Creative Services í Bandaríkjunum en þar fór hún fyrir 30 manna hópi sem vann að ýmsum hönnunarverkefnum. Þar áður starfaði hún sem yfirhönnuður hjá bókaútgáfunni Houghton Mifflin Company í Boston. Edda er grafískur hönnuður frá Myndlista- og handíðaskóla Íslands auk þess að hafa MA-gráðu í auglýsingahönnun frá Syracuse-háskóla.

Auk Eddu starfa hjá PORT hönnun þau Emilía Erla Ragnarsdóttir, með MA-gráður í margmiðlun og interfacum frá listaháskólunum Bau og Elisava í Barcelona, og Kári Marteinsson, með MA-gráðu í grafískri hönnun frá Danmarks Designskole í Kaupmannahöfn.

PORT hönnun er dótturfyrirtæki AP almannatengsla. Hjá PORT hönnun starfa fimm manns en framtíðarhúsnæði fyrirtækisins er að Grandagarði 8 í Reykjavík.


Til baka
 
 
     
AP almannatengsl ehf. - Laugavegi 182 - 105 Reykjavík - sími +354 514 1430 - fax +354 514 1478 - appr@appr.is