07-04-2008

Ráðstefna um skipulagsmál og fasteignamarkaðinn verður haldin í Laugardalshöll fimmtudaginn 17. apríl í tengslum við sýninguna Verk og vit 2008. Yfirskrift ráðstefnunnar er Skipulag eða stjórnleysi og er markmið hennar að varpa ljósi á þróun skipulagsmála og horfur.

Á ráðstefnunni verður fjallað um rekstur fasteigna, skipulagsmál, fjármögnun og nýjar framkvæmdir. Leitast verður við að svara spurningum eins og: Hvernig gengur einkaaðilum og fasteignafélögum að framfylgja markmiðum sínum í samvinnu við skipulagsyfirvöld? Hver er framtíðarsýn borgar og bæja í skipulagsmálum? Stöndum við okkur í alþjóðlegum samanburði? Hvernig gengur að fjármagna framkvæmdir?

Hvatt er til umræðu um skipulagsmál
Fundarstjóri á ráðstefnunni verður Ásdís Halla Bragadóttir. Hún fagnar því að efnt skuli til ráðstefnu um skipulagsmál því að mikilvægt sé að vettvangur skapist fyrir umræðu um skipulagsmál og fleiri mál þeim tengd. „Það er beinlínis til vandræða fyrir alla hve samstarf sveitarfélaganna í skipulagsmálum er losaralegt. Á sínum tíma var farið í mikla vinnu vegna svæðisskipulags höfuðborgarsvæðisins. Hins vegar er ekki tekið mikið tillit til þess þegar farið er út í framkvæmdir og það á við um alla sem starfa á þessum vettvangi. Sveitarfélögin hafa farið sínar leiðir, sem og fyrirtækin og fjármálafyrirtækin. Ég hef miklar væntingar til þessarar ráðstefnu. Hún hvetur til umræðu og samstarfs um þann mikilvæga málaflokk sem skipulagsmál eru og þar verður einnig hægt að nálgast heildarmynd af stöðu mála og horfum.“

Hanna Birna Kristjánsdóttir, formaður skipulagsráðs Reykjavíkur, setur ráðstefnuna. Ræðumenn verða Gunnar I. Birgisson, bæjarstjóri í Kópavogi, Guðbjörg Andrea Jónsdóttir, rannsóknarstjóri hjá Capacent Gallup, Ari Skúlason, forstöðumaður Greininga, samskipta og upplýsingamiðlunar á Fyrirtækjasviði Landsbankans, Haraldur Sverrisson, bæjarstjóri í Mosfellsbæ og varaformaður Sambands sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu, Davíð Björnsson, aðstoðarframkvæmdastjóri Fyrirtækjasviðs Landsbankans, Sigfús Jónsson, stjórnarformaður Nýsis og Operon, Inga Jóna Þórðardóttir, formaður nefndar um fasteignir, nýbyggingar og aðstöðu heilbrigðisstofnana  og Þorkell Sigurlaugsson, framkvæmdastjóri þróunarsviðs Háskólans í Reykjavík.

Að framsöguerindum loknum verða pallborðsumræður þar sem þátt taka Ari Skúlason, forstöðumaður Greininga, samskipta og upplýsingamiðlunar á Fyrirtækjasviði Landsbankans, Árni Jóhannsson, forstöðumaður mannvirkjasviðs Samtaka iðnaðarins, Davíð Björnsson, aðstoðarframkvæmdastjóri Fyrirtækjasviðs Landsbankans, G. Oddur Víðisson, forstjóri Þyrpingar og Sverrir Kristinsson, stjórnarmaður í Félagi fasteignasala.

Öllum opin
Ráðstefnan er haldin í samstarfi við Landsbanka Íslands og Fasteignastjórnunarfélag Íslands. Hún er öllum opin og þátttökugjald er 16.900 kr. Innifalið í gjaldinu er léttur hádegisverður og boð á formlega opnun sýningarinnar Verk og vit 2008. Tilkynna þarf þátttöku fyrir þriðjudaginn 15. apríl nk. en sætafjöldi er takmarkaður.

Skráning fer fram með tölvupósti á netfangið This e-mail address is being protected from spambots, you need JavaScript enabled to view it eða í síma 511 1230.

Nánari upplýsingar um dagskrá.

Til baka
 
 
     
AP almannatengsl ehf. - Laugavegi 182 - 105 Reykjavík - sími +354 514 1430 - fax +354 514 1478 - appr@appr.is