04-06-2008

Silfurverðlaun fyrir ársskýrslu Alfesca

Ársskýrsla Alfesca 2007 lenti í verðlaunasæti þegar Sappi, einn stærsti pappírsframleiðandi í heimi, tilkynnti hverjar væru prentsmiðjur ársins að mati fyrirtækisins. Ársskýrslan var prentuð hjá Prentmeti, hönnuð af H2 hönnun, ritstjórn var í höndum AP almannatengsla og pappírinn kom frá Hvítlist.

Prentmet hlaut silfurverðlaun fyrir framlag sitt til keppninnar, „Alfesca 2007“ í flokki ársskýrslna en þetta er í fyrsta sinn sem íslensk prentsmiðja tekur þátt í keppninni. 38 framlög voru valin og veitt verðlaun, úr 1.500 tilnefningum sem bárust. Þarf af fengu 8 gullverðlaun, 14 silfurverðlaun og 16 bronsverðlaun.

Í fréttatilkynningu frá Sappi segir að ársskýrsla Alfesca hafi að mati dómnefndar verið snyrtileg með stílhreinum myndum sem pössuðu vel saman þegar þær stóðu gegn hverri annarri. Þá hafi pappírinn sem notaður var gert Prentmeti kleift að líkja framúrskarandi vel eftir útliti og áferð þeirra vara sem Alfesca framleiðir. Verðlaunin voru afhent við hátíðlega athöfn í Hamborg 31. maí sl.


Til baka
 
 
     
AP almannatengsl ehf. - Laugavegi 182 - 105 Reykjavík - sími +354 514 1430 - fax +354 514 1478 - appr@appr.is