| 18-04-2008 | |
|
Traust og trúverðugleiki verða meginefni morgunverðarfundar sem haldinn verður á vegum AP almannatengsla, Capacent Gallup og Viðskiptaráðs á Hilton Reykjavík Nordica fimmtudaginn 8. maí. Kynntar verða niðurstöður alþjóðlegrar traustsrannsóknar almannatengslafyrirtækisins Edelman og sambærilegrar rannsóknar Capacent Gallup á Íslandi. Traustsrannsóknin var framkvæmd í fyrsta sinn á Íslandi síðastliðið vor og er þetta því í annað sinn sem traust og trúverðugleiki eru könnuð á Íslandi með aðferðum Edelman. Dagskrá morgunverðarfundarins verður nánar kynnt síðar.
|
Til baka





