18-04-2008
Vel á annað hundrað manns sóttu ráðstefnu um skipulagsmál og fasteignamarkaðinn sem var haldin í Laugardalshöll fimmtudaginn 17. apríl í tengslum við sýninguna Verk og vit 2008. Markmið ráðstefnunnar var að varpa ljósi á þróun skipulagsmála og horfur. Var m.a. fjallað um rekstur fasteigna, skipulagsmál, fjármögnun og nýjar framkvæmdir.

Gunnar I. Birgisson, bæjarstjóri í Kópavogi, var meðal ræðumanna. Gunnar fjallaði um mikilvægi sjálfstæðis sveitarfélaga í skipulagsmálum og gagnrýndi hann harðlega að forsjárhyggjuöflin og valdboðið hefðu þar náð yfirhöndinni. „Þessi öfl hafa komið ár sinni svo vel fyrir borð að þau eru í raun farin að stýra rás atburða í sveitarfélögunum.“ Gunnar fjallaði um það megininntak skipulags- og byggingarlaganna að skipulagsmál ættu að vera á valdi og ábyrgð sveitarfélaganna og sagði: „Mér finnst að sveitarstjórnarmenn um allt land hafi látið plata sig. Í stað þess að auka vald og ábyrgð sveitarstjórna í skipulags- og byggingarmálum eins og um var talað, hefur valdið samkvæmt gildandi lögum færst yfir til stofnana ríkisins.“

Kynntar voru niðurstöður könnunar Capacent Gallup meðal fyrirtækja og framkvæmdaaðila sem eiga samskipti við skipulagsyfirvöld sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu. Þar kom fram að ríflega helmingi finnst sveitarfélögin sinna skipulagsmálum illa. Kalla þessir aðilar helst eftir heildarsýn, hraðri afgreiðslu og skýrum markmiðum í skipulagsmálum.Megn óánægja var með samskipti við skipulagsyfirvöld í Reykjavík en mest ánægja með samskiptin við skipulagsyfirvöld í Kópavogi. Nokkurrar bjartsýni gætir meðal aðspurðra en fram kom að tæp 67% eða tveir af hverjum þremur telja líklegt að fyrirtæki þeirra komi að gerð nýs atvinnuhúsnæðis á næstu 12 mánuðum. Um 27% svöruðu að gerð nýs atvinnuhúsnæðis væri ólíkleg en 6% hvorki né.

Í erindi Ara Skúlasonar, forstöðumanns Greininga, samskipta og upplýsingamiðlunar á Fyrirtækjasviði Landsbankans, kom fram að búið væri að byggja allt of mikið. Hann gagnrýndi að upplýsingar um áætlaðar íbúðabyggingar væru óáreiðanlegar og mismunandi eftir því hvaðan þær kæmu. Til að ráða bug á óvissunni sem þetta skapaði hefðu starfsmenn Landsbankans einfaldlega farið út í ný hverfi í sveitarfélögum höfuðborgarsvæðisins og talið fjölda íbúða og þannig fengið skýrari mynd af stöðu mála.

Aðrir ræðumenn voru Haraldur Sverrisson, bæjarstjóri í Mosfellsbæ og varaformaður Sambands sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu, sem fjallaði um hvort samstarf sveitarfélaga höfuðborgarsvæðisins væri raunhæfur kostur. Davíð Björnsson, aðstoðarframkvæmdastjóri Fyrirtækjasviðs Landsbankans, greindi frá fjármögnun fasteignaverkefna og Sigfús Jónsson, stjórnarformaður Nýsis og Operon, sagði frá fasteignaverkefnum Nýsis í Bretlandi. Þá greindi Inga Jóna Þórðardóttir, formaður nefndar um fasteignir, nýbyggingar og aðstöðu heilbrigðisstofnana, frá nýju háskólasjúkrahúsi og Þorkell Sigurlaugsson, framkvæmdastjóri þróunarsviðs Háskólans í Reykjavík, fjallaði um nýbyggingu Háskólans í Reykjavík í Vatnsmýrinni.

Margar fyrirspurnir bárust ræðumönnum og síðar þátttakendum í pallborðsumræðum. Fundarstjóri var Ásdís Halla Bragadóttir.

Erindi ræðumanna má nálgast hér:

Ari Skúlason. Smellið hér (0,6 MB).

Haraldur Sverrisson. Smellið hér (3,4 MB).

Davíð Björnsson. Smellið hér (0,1 MB).

Sigfús Jónsson. Smellið hér (1 MB).

Inga Jóna Þórðardóttir. Smellið hér (10,6 MB).


Til baka
 
 
     
AP almannatengsl ehf. - Laugavegi 182 - 105 Reykjavík - sími +354 514 1430 - fax +354 514 1478 - appr@appr.is