|
Við erum flutt á Grandagarð 8 |
|
21-10-2008 |
|
AP almannatengsl eru flutt í nýtt húsnæði á Grandagarði 8, BÚR-húsið, við gömlu höfnina í Reykjavík. Nýtt símanúmer fyrirtækisins er 514 1430 og faxnúmer 511 3551. Netföng starfsmanna og vefsvæði eru óbreytt. Húsið að Grandagarði 8, sem í daglegu tali er þekkt sem BÚR-húsið, var reist árið 1947 undir starfsemi Fiskiðjuvers ríkisins og var á þeim tíma eitt stærsta fiskiðjuver Norðurlanda. Bæjarútgerð Reykjavíkur keypti svo húsið árið 1959 og var samfelld starfsemi á vegum BÚR í húsinu í 26 ár, eða allt til ársins 1985.
Húsið hefur löngum verið þýðingarmikið í atvinnustarfsemi Reykjavíkur og má segja að í dag sé komin ný útgerð í BÚR-húsið, en þar hafa nú nokkur þekkingar- og innflutningsfyrirtæki aðsetur auk Sjóminjasafns Reykjavíkur. Á þriðju hæðinni eru ásamt AP almannatengslum til húsa fyrirtækin PORT hönnun, Caoz og Íslensk fjárfesting. 
|