| CCP setur upp Windows 7 með góðum árangri |
| 25-11-2009 | |
|
Tölvuleikjafyrirtækið CCP innleiðir nú Windows 7, nýjasta stýrikerfi Microsoft. Reynsla þeirra af nýja stýrikerfinu er afar góð eins og fram kemur í reynslusögu sem AP almannatengsl unnu fyrir Microsoft. Við gerð reynslusögunnar, sem nálgast má á vef Microsoft var rætt við Ian O‘Brien, kerfisstjóra hjá CCP, sem sagði m.a. að hans reynsla bendi ótvírætt til þess að afköst starfsmanna aukist með notkun stýrikerfisins: „Hraðari ræsing, hraðari vinnsla, færri vandamál og auðveldari vinna starfsfólks í stýrikerfinu – allt leiðir þetta til að sekúndur og mínútur sem áður fóru í bið eða fleiri aukahandtök græðast. Þetta safnast saman yfir daginn og þegar fyrirtækið er fjölmennt er um verulegan tíma að ræða. Svo bætist við að ég sem kerfisstjóri þarf að glíma við færri vandamál tengd stýrikerfum starfsmanna og get unnið mín verkefni hraðar. Ávinningurinn er því augljós.“ Reynslusögur á borð við þessa geta aukið skilning á flóknum vörum eða þjónustu og dregið fram kosti þeirra með raunverulegum dæmum. Ánægðir viðskiptavinir eru besta kynningin – og því er mikilvægt að saga þeirra heyrist. |
Til baka





