|
17-04-2009 |
|
Tímaritið PRWeek hefur valið Edelman almannatengslastofu ársins 2009. Edelman var einnig valin almannatengslastofa ársins í flokki stærri fyrirtækja og er þetta annað árið í röð sem Edelman vinnur til þeirra verðlauna.
Í umsögn dómnefndar segir að leiðandi staða Edelman í almannatengslum sé óumdeild. Þegar kom að vali á almannatengslastofu ársins voru það þættir eins og fjárhagsleg afkoma, nýsköpun og samband við viðskiptavini sem réðu úrslitum um að Edelman hreppti hnossið. Á tímabilinu sem var til skoðunar óx velta Edelman um 19% á heimsgrundvelli og 16% í Bandaríkjunum. Nær aðeins var um innri vöxt að ræða sem má rekja til áralangs viðskiptasambands við trausta viðskiptavini eins og Heinz, Wieth, Butterball, Johnson&Johnson, Unilever, UPS, Kraft o.fl. Eftir því var tekið að Edelman hélt öllum 50 stærstu viðskiptavinum sínum en um 50% veltunnar má rekja til þeirra. Edelman bætti einnig við sig 279 nýjum viðskiptavinum, þar á meðal Pepsi, Teleflora og Hewlett Packard.
|