| Ferðalög og frístundir |
| 06-01-2009 | |
|
Markmið sýningarinnar er að kynna fjölbreytileika ferðaþjónustu og frístundamöguleika á Íslandi og vekja athygli á þeim öflugu fyrirtækjum og stofnunum sem koma að ferða- og afþreyingarmálum. Hvetja á Íslendinga til að skoða þá fjölbreyttu möguleika sem í boði eru og benda á nýjar og spennandi leiðir til að upplifa og kynnast landinu; auk þess sem framboð á ferðum til útlanda verður kynnt . Ennfremur verður kynning á fjölbreyttu framboði frístunda-, afþreyingar- og íþróttastarfs sem í boði er fyrir börn, unglinga og fullorðna. Upplýsingar um sýningarrými, skráningu, skilmála, verð, tryggingar o.þ.h. er að finna á vefsvæði sýningarinnar. |
Til baka






Sýningin