Fjölmenni á Reykjanesi 2009
08-09-2009
Mikill fjöldi gesta lagði leið sína á sýninguna Reykjanes 2009 í Íþróttaakademíunni í Reykjanesbæ á Ljósanótt til að kynna sér það nýjasta í uppbyggingu atvinnulífs, þjónustu og handverkshönnun.

Góður rómur var gerður að frammistöðu þeirra rúmlega 50 sýnenda sem tóku þátt í sýningunni en þeir höfðu lagt mikla vinnu í að gera sýningarsvæði sín sem áhugaverðust fyrir gesti, jafnt unga sem aldna.

Sýningin sem var hluti af fjölbreyttri Ljósanæturhátíð Reykjanesbæjar var haldin undir yfirskriftinni „þekking, orka, tækifæri“ og var markmið hennar að varpa ljósi á atvinnulíf, þjónustu sveitarfélaga og mannlíf á Reykjanesi.
Reykjanes 2009 var haldin af Reykjanesbæ í samvinnu við AP almannatengsl sem sáu um skipulagningu, kynningu og framkvæmd sýningarinnar. Öflugir samstarfsaðilar úr atvinnulífinu á Reykjanesi komu einnig að sýningunni; Bláa lónið, Geysir Green Energy, Háskólavellir, HS Orka, KADECO – Þróunarfélag Keflavíkurflugvallar, Keilir, Norðurál og Sparisjóðurinn í Keflavík.

Til baka
 
 
     
AP almannatengsl ehf. - Laugavegi 182 - 105 Reykjavík - sími +354 514 1430 - fax +354 514 1478 - appr@appr.is