23-06-2009

Stórsýningin Reykjanes 2009 verður haldin í Reykjaneshöllinni dagana 4.-6. september í tengslum við 10 ára afmæli Ljósanætur, menningar- og fjölskylduhátíðar Reykjanesbæjar. Sýningin er haldin undir yfirskriftinni „þekking, orka, tækifæri“ og þar verður kynnt að helsta sem Reykjanes hefur upp á að bjóða í atvinnulífi, menningu og þjónustu. Stefnt er að því að hún verði stærsti viðburður sinnar tegundar sem haldinn hefur verið á Reykjanesi. Sala sýningarrýma er komin í fullan gang og er mikill hugur í sýnendum sem þegar hafa skráð sig til þátttöku.

Sýningin verður opnuð föstudaginn 4. september og megináhersla lögð á dagskrá fyrir fagaðila þann daginn. Almenningur verður boðinn velkominn alla sýningardagana og er aðgangur ókeypis. Auk kynninga á því sem helstu fyrirtæki, stofnanir og sveitarfélög á Reykjanesi hafa upp á að bjóða verða skemmtiatriði á sviði sýningarinnar í tengslum við Ljósanótt, sem og valin atriði frá sveitarfélögum á Suðurnesjum.

Sýningin er haldin af Reykjanesbæ sem hefur gert samstarfssamning við AP almannatengsl um skipulagningu, kynningu og framkvæmd hennar. Öflugir samstarfsaðilar úr atvinnulífinu á Reykjanesi koma einnig að sýningunni; Bláa lónið, Geysir Green Energy, Háskólavellir, HS Orka, KADECO – Þróunarfélag Keflavíkurflugvallar, Keilir, Norðurál og Sparisjóðurinn í Keflavík.

„Framundan er mikil uppbygging á svæðinu og sýningin Reykjanes 2009 verður góður vettvangur til að koma því á framfæri. Hér veitum við fyrirtækjum og stofnunum á öllu Reykjanessvæðinu og víðar einstakt tækifæri til að taka á móti þeim góða hópi gesta sem ávallt sækir Ljósanótt heim og kynna fyrir þeim kröftugt og fjölbreytt atvinnu- og mannlíf á Reykjanesi. Ég er þess fullviss að þessi viðburður verði lyftistöng fyrir atvinnulífið á svæðinu,“ segir Árni Sigfússon, bæjarstjóri Reykjanesbæjar.

Vefsvæði sýningarinnar hefur verið opnað á slóðinni www.reykjanes2009.is.

Til baka
 
 
     
AP almannatengsl ehf. - Laugavegi 182 - 105 Reykjavík - sími +354 514 1430 - fax +354 514 1478 - appr@appr.is