| Traust til viðskiptalífsins hrapar |
| 20-03-2009 | |
|
Um tveir þriðju hlutar upplýstra einstaklinga treysta fyrirtækjum síður en þeir gerðu fyrir ári. Þetta kemur fram í 10. traustskönnun alþjóðlega almannatengslafyrirtækisins Edelman, samstarfsaðila AP almannatengsla, sem kynnt var á viðskiptaráðstefnunni í Davos nýverið. Traustkönnun Edelman kannar traust og trúverðugleika meðal upplýstra einstaklinga til fjögurra stofnana samfélagsins; viðskiptalífsins, stjórnvalda, fjölmiðla og frjálsra félagasamtaka. Í ár náði könnunin til 4.475 þátttakenda í 20 löndum. Þegar þátttakendur í Bandaríkjunum voru spurður um traust í viðskiptum almennt sögðust einungis 38% treysta fyrirtækjum til að breyta rétt - sem er 20% hrap frá síðasta ári - og einungis 17% sögðust mundu treysta upplýsingum frá forstjóra fyrirtækis. Í báðum tilvikum er um að ræða lægra hlutfall en mældist í kjölfar Enron-hneykslisins, þess að netbólan sprakk og hryðjuverkaárásanna 11. september 2001. Í Bretlandi, Frakklandi og Þýskalandi, höfuðvígjum evrópsks efnahagslífs, sögðu um þrír af hverjum fjórum að stjórnvöld ættu að grípa inn í til að koma í veg fyrir frekari efnahagskreppu. Í Bandaríkjunum var innan við helmingur eða 49% á þeirri skoðun að frjáls markaður ætti að fá að starfa sjálfstætt. Hrun í trausti endurspeglast vel í verslun. Þannig sögðu 77% að þau vildu ekki kaupa vöru eða þjónustu frá fyrirtæki sem þau vantreystu en þetta er í fyrsta sinn sem kannaðar eru beinar athafnir gagnvart fyrirtækjum á grundvelli trausts. Þá sögðust 72% gagnrýna fyrirtæki sem þau treystu ekki í eyru vina eða samstarfsmanna. Ennfremur kemur fram að traust á nær öllum fréttauppsprettum og talsmönnum hefur rýrnað frá síðasta ári. Sjá nánar um niðurstöður könnunarinnar hér: Edelman Trust Barometer 2009. |
Til baka





