| Traust til fyrirtækja eykst á ný |
| 23-04-2010 | |
|
Traust á viðskiptalífinu í heiminum hefur aukist nokkuð frá síðasta ári. Þetta kemur fram í nýlegri könnun alþjóðlega almannatengslafyrirtækisins Edelman, samstarfsaðila AP almannatengsla, sem birt var fyrir nokkru. Aukið traust á viðskiptalífinu í Bandaríkjunum og í nokkrum löndum Evrópu er meginástæðan fyrir aukningunni frá fyrra ári. Hafa verður í huga að traustið hrapaði víða mikið á síðasta ári. Í hinni árlegu traustskönnun Edelmans eru könnuð viðhorf svonefndra upplýstra einstaklinga til fjögurra stofnana samfélagsins í ýmsum löndum. Þetta eru stjórnvöld, viðskiptalífið, fjölmiðlar og frjáls félagasamtök. Haft er eftir Richard Edelman, forstjóra og stjórnarformanni Edelmans, í tilkynningu frá fyrirtækinu að þótt traustið á viðskiptalífinu hafi aukist í ár sé nokkuð í land. „Hið aukna traust er viðkvæmt,“ segir hann. „Ýmsir hafa áhyggjur af því að þær skammtímaaðgerðir sem gripið hefur verið til hafi einungis verið ákveðnar út frá kreppunni og að stjórnvöld muni áfram þurfa að hafa vakandi auga með stöðunni.“ Þá segir Edelman að fyrirtækin verði að sýna að þeir sem efist um að þau geti bæði skilað hagnaði og gegnt hlutverki sínu sem skyldi hafi ekki ástæðu til að hugsa á þeim nótum. Í fyrsta skipti í traustskönnun Edelmans kemur fram að traust og gegnsæi skiptir nú jafn miklu máli að mati þátttakenda í könnuninni og orðstír og afurðir fyrirtækjanna. Reyndar eru þessir þætti jafnvel hærra metnir í Bandaríkjunum og víða í Evrópulöndum. Þá er mun minna lagt upp úr hagnaði fyrirtækja nú en áður, sem er mikil breyting sérstaklega í samanburði við árið 2006, þegar áhersla á hagnað fór hæst. Traust til fyrirtækja á Ítalíu jókst mest í könnun Edelmans á þessu ári, eða um 26 prósentustig. Næst komu Bandaríkin með 18 prósentustiga aukningu, úr 36% í 54%. Traustið er þó meira til fyrirtækja í Kína, á Indlandi og í Brasilíu, þar sem það er yfir 60%, en það féll ekki jafn mikið í þessum löndum og víðast hvar annars staðar á síðasta ári. Könnun Edelmans fyrir árið 2010 er sú tíunda í röðinni hjá fyrirtækinu. Hún fór fram á tímabilinu frá 29. september til 6. desember 2009 og náði til 4.875 einstaklinga á aldrinum 25-64 ára í 22 löndum. |
Til baka





