|
AP almannatengsl leita ráðgjafa í almannatengslum AP almannatengsl leita að ráðgjafa í almannatengslum og eru áhugasamir hvattir til að senda umsókn á
This e-mail address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it
fyrir 18. apríl næstkomandi. Starfssvið:
• Almenn ráðgjöf á sviði almannatengsla. • Aðstoð við gerð áætlana um almannatengsl og framkvæmd þeirra í samráði við viðskiptavini. • Textagerð á íslensku og ensku. • Fjölmiðlatengsl. • Umsjón með útgefnu efni.
Hæfniskröfur: • Háskólamenntun eða sambærileg menntun. • Starfsreynsla á sviði almannatengsla eða fjölmiðlunar. • Skipulagshæfileikar. • Mjög gott vald á íslensku og ensku. • Góð þekking á viðskiptalífinu og áhugi á þjóðmálum.
Áhersla er lögð á fagmennsku, drifkraft, hugmyndaauðgi, jákvæðni og sjálfstæð vinnubrögð.
Áhugasamir vinsamlegast sendi umsókn á
This e-mail address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it
Skilafrestur umsókna er til 18. apríl 2011.
Farið verður með allar umsóknir og fyrirspurnir sem trúnaðarmál.
AP almannatengsl veita fyrirtækjum, stofnunum og einstaklingum alhliða ráðgjöf á sviði almannatengsla. Komið er til móts við ólíkar þarfir fyrirtækja og stofnana með mælanlegan árangur að leiðarljósi. AP almannatengsl eru samstarfsaðili Edelman á Íslandi, en Edelman er eitt stærsta almannatengslafyrirtæki heims.
|