|
Öll gögn kortasamráðsmálsins svokallaða hafa verið birt á vefnum Kortasamrad.is. AP almannatengsl sáu um ráðgjöf, vefritstjórn og fjölmiðlasamskipti. PORT hönnun annaðist hönnun og uppsetningu á vefnum og framleiðsla myndbanda var í höndum SnorriMedia.com. Málsgögn kortasamráðsmálsins voru afhent á grundvelli upplýsingalaga og eru því opinber. Ákvörðun Samkeppniseftirlitsins nr. 4/2008 í kortasamráðsmálinu snýr að brotum samkeppnisaðila Kortaþjónustunnar á bannákvæðum samkeppnislaga. |





