Endurmörkun

AP almannatengsl veita margvíslega aðstoð þegar endurmarka á stefnu fyrirtækis, breyta nafni þess, bæta ásýnd eða auka kynningarstarf. AP almannatengsl sjá um verkstjórn í nánu samstarfi við viðskiptavini.

Þegar ákveðið er að ráðast í endurmörkun  er mikilvægt að setja fram skýra stefnumörkun og sjá til þess að markvissri breytingastjórnun sé beitt. Markmið fyrirhugaðra breytinga og skilgreiningar á nauðsyn þeirra þurfa að vera skýrar. Mikilvægt er að vanda undirbúning og þar kemur öflug og markviss verkefnastjórnun til skjalanna. Greina þarf markhópa og átta sig á hver lykilskilaboðin eigi að vera. Ef breyta á nafni fyrirtækis er t.d. mikilvægt að finna nafn sem hentar viðkomandi fyrirtæki, starfsemi þess og ímynd. AP almannatengsl veita ráðgjöf við leit að nýju nafni, skráningu þess, nýs vefléns og vörumerkis hjá viðeigandi stofnunum.

Nauðsynlegt er að allt breytingaferlið sé skipulagt og mikilvægt er að vel sé haldið utan um viðburði og samskipti við fjölmiðla. Hver varð árangurinn? Skilaði endurmörkunin því sem til var ætlast? Eftirfylgni og mælingar eru punkturinn yfir i-ið og veita skýra sýn á árangur endurmörkunarinnar.

Vinsamlegast sendu This e-mail address is being protected from spambots, you need JavaScript enabled to view it   eða hringdu í síma 514 1430 til að fá nánari upplýsingar.

 
 
     
AP almannatengsl ehf. - Laugavegi 182 - 105 Reykjavík - sími +354 514 1430 - fax +354 514 1478 - appr@appr.is