Fjárfestatengsl

Fjárfestatengsl (e. Investor Relations, IR) eru samskipti fyrirtækis við innlenda og erlenda markaðsaðila vegna upplýsinga sem geta haft áhrif á verð og viðskipti með hlutabréf. AP almannatengsl bjóða þýðingu uppgjörstilkynninga, ritun fréttatilkynninga, gerð glærukynninga og kynningarefnis auk undirbúnings og umsjónar með fundum.

AP almannatengsl vinna með viðskiptavinum að því að greina og styrkja ímynd þeirra gagnvart fjárfestum og miðla upplýsingum um þau atriði sem skipta hluthafa mestu máli. AP almannatengsl veita ráðgjöf við stefnumótun í fjárfestatengslum, gerð áætlana um fjármálatengsl og annast skipulagningu og framkvæmd kynningarstarfs. Fyrirtækið hefur umsjón með fundum fyrir fjárfesta, gerð kynningarefnis fyrir fjármálamarkað og fjölmiðla og aðstoðar við formlega upplýsingagjöf til Kauphallar Íslands. AP almannatengsl annast einnig ritstjórn árs- og ársfjórðungsskýrslna fyrir viðskiptavini sína.

Vinsamlegast sendu This e-mail address is being protected from spambots, you need JavaScript enabled to view it   eða hringdu í síma 514 1430 til að fá nánari upplýsingar. 


Gagnlegir tenglar um fjárfestatengsl

Félag um fjárfestatengsl

National Investor Relations Institute

International Investor Relations Federation

Real IR

The Investor Relations Society

The Canadian Investor Relations Institute

Leiðbeiningar Kauphallar Íslands um fjárfestatengsl
 
 
     
AP almannatengsl ehf. - Laugavegi 182 - 105 Reykjavík - sími +354 514 1430 - fax +354 514 1478 - appr@appr.is