Krísustjórnun

AP almannatengsl taka að sér að gera viðbragðsáætlanir fyrir viðskiptavini sína og veita þeim ráðgjöf um krísustjórnun. Reynslan sýnir að bein tengsl eru á milli þess hvernig krísuástandi er stjórnað og hvernig tekst í kjölfarið að viðhalda og vernda virði hlutabréfa og vörumerkja, viðhalda tryggð starfsmanna og halda sambandi við aðra haghafa.

Flest fyrirtæki geta átt von á því að upp komi óvæntir atburðir eða röð atburða sem geta skaðað ímynd þeirra eða valdið þeim fjárhagslegu tjóni. Krísustjórnun er því að verða sífellt mikilvægari í stjórnun og rekstri fyrirtækja. Oft hunsa fyrirtæki aðvörunarmerki um að krísa geti verið yfirvofandi. Langflestar krísur hafa hins vegar verið kraumandi lengi og jafnvel verið á vitorði tiltekinna starfsmanna eða stjórnenda fyrirtækisins áður en almenningur fær vitneskju um þær og þá í flestum tilfellum gegnum fjölmiðla.

Fyrstu klukkutímarnir skipta sköpum þegar brugðist er við krísu. Þessu má líkja við hjartaáfall, því  fyrr sem brugðist er við þeim mun líklegra er að árangur náist. Stjórnendur og yfirmenn fyrirtækisins verða fyrir miklu áreiti þegar krísur verða. Það er því mikilvægt að fyrirtækið hafi gert viðbragðsáætlun sem unnt er að grípa til þegar krísuástand skapast. Góð krísustjórnun felst í því að undirbúa fyrirtæki fyrir óvænta atburði frekar en í viðbrögðum við þeim.

Vinsamlegast sendu This e-mail address is being protected from spambots, you need JavaScript enabled to view it   eða hringdu í síma 514 1430 til að fá nánari upplýsingar.

 
 
     
AP almannatengsl ehf. - Laugavegi 182 - 105 Reykjavík - sími +354 514 1430 - fax +354 514 1478 - appr@appr.is