Viðburðastjórnun

Starfsmenn AP almannatengsla hafa mikla reynslu af stjórnun viðburða, s.s. skipulagningu sýninga, ráðstefna, funda, málþinga og hátíða. AP almannatengsl bjóða upp á heildarþjónustu vegna viðburða og veita ráðgjöf um gerð framkvæmda- og kostnaðaráætlana, val á fundarstað, tæknileg atriði og útfærslu, hafa umsjón með skráningu þátttakenda, hönnun og gerð fundargagna, sjá um fjármál ráðstefna, uppgjör o.fl. Undirbúningur viðburða er oft langt og margbrotið ferli og því er mikilvægt að vel sé haldið utan um undirbúning og skipulagningu.

AP almannatengsl hafa staðið fyrir sýningunum Ferðalög og frístundir 2009, sem haldin var í Íþrótta- og sýningarhöllinni í Laugardal 8.-10. maí 2009, Verk og vit 2008, sem haldin var í Íþrótta- og sýningarhöllinni í Laugardal 17.-20. apríl 2008, Verk og vit 2006, 16.-19. mars 2006, og Tækni og vit 2007, sem haldin var 8.-11. mars 2007 í Fífunni í Kópavogi.

Vinsamlegast sendu This e-mail address is being protected from spambots, you need JavaScript enabled to view it   eða hringdu í síma 514 1430 til að fá nánari upplýsingar.

 
 
     
AP almannatengsl ehf. - Laugavegi 182 - 105 Reykjavík - sími +354 514 1430 - fax +354 514 1478 - appr@appr.is