Traust á viðskiptalífinu eykst aftur

Traust á viðskiptalífinu hefur aukist á nýjan leik síðustu mánuði eftir mikið hrun í kjölfar efnahagskreppunnar samkvæmt nýrri traustkönnun Edelmans, sem er alþjóðlegur samstarfsaðili AP almannatengsla. Edelman, sem framkvæmt hefur alþjóðlegar traustkannanir árlega sl. tíu ár, framkvæmdi sérstaka aukakönnun í sumar vegna sérstakra aðstæðna í efnahagslífinu. Könnunin 2009, sem birt var í janúar, hafði sýnt verulegt hrun í trausti til viðskiptalífsins í kjölfar efnahagsþrenginga, og því vildu forsvarsmenn Edelmans gera sérstaka aukakönnun nú á miðju ári til að meta stöðuna.

Niðurstaðan varð sú að traust til viðskiptalífsins hafði aukist talsvert frá síðustu könnun. Næstum helmingur svarenda (48%) í Bandaríkjunum sagðist treysta viðskiptalífinu til að gera það sem er rétt, sem er hækkun úr 36% í janúar. Í Frakklandi hækkaði sambærilegt hlutfall úr 30% í 41%. Traust til stjórnvalda virðist einnig fara vaxandi á nýjan leik, (úr 30% í 42% í Bandaríkjunum og úr 42% í 55% á Indlandi, svo dæmi séu tekin). Sérstaklega virðist sem traust hafi aukist í hópi yngstu svarenda (25 – 34 ára) og eftir því var tekið að traust jókst frá janúar á fyrirtækjum í öllum flokkum atvinnugreina sem spurt var um.

Þar með er þó ekki sagt að allt leiki í lyndi á nýjan leik í þessum efnum. Til að mynda segja einungis 30% svarenda í Bandaríkjunum að orðspor alþjóðlegra stórfyrirtækja sé gott eða mjög gott en rúmlega helmingur – 52% – segir það einungis vera sæmilegt eða slæmt.

Nánar má lesa um þessa nýjustu traustkönnun Edelmans hér.

Nánar um traust á vef Edelman.

 
 
     
AP almannatengsl ehf. - Laugavegi 182 - 105 Reykjavík - sími +354 514 1430 - fax +354 514 1478 - appr@appr.is